Þeir komu eins og venjulega og skemmtu ferðamönnum
Háhyrningar eru nú á Heimaeyjarsvæðinu
13.07.2008
Þessi frábæra mynd var tekin í hringferð um borð í Víkingi nú fyrir helgi. Umhverfis Vestmannaeyjar eru stærstu háhyrningavöður við Ísland.
SURTSEY á heimsmynjaskrá UNESCO
13.07.2008
Nýjustu fréttir herma að Surtsey sé komin á heimsmynjaskrá UNESCO. Um er að ræða einstakan atburð þar sem aðeins eru tveir staðir á Íslandi skráðir á heimsmynjaskrá. þ.a.s. Þingvellir og Surtsey nú.
Café Kró opnar eftir vetrardvalann
09.06.2008
Café kró opnar á fimmtudag. Við munum bjóða uppá gamla góða matinn á Café kró og lofum að breyta engu sem gott hefur verið hjá okkur. Besta kaffið í bænum og meðlæti. Pizzurnar okkar eru að festa sig í sessi ásamt grænmetisréttum og ýmsu öðru.
Nýjar rútur
09.06.2008
Viking Tours hefur endurnýjað hluta af rútuflotanum. Tvær BOVA rútur hafa bæst í flotann önnur sem tekur 39 farþega og svo flaggskip sem tekur 67 farþega.
Myndlistasýning á Galleri Kró
20.07.2007
Nú er í gangi Galleri Kró sýning á myndum Sonju Hand sem við nefnum "Hand made" Allir eru velkomnir á sýnguna til að skoða og kaupa einstakar myndir frá Eyjum.
Eitt hundrað ára afmæli Stórhöfðavita
14.11.2006
Í dag höldum við upp á eitt hundrað ára afmæli Stórhöfðavita. Á Café Kró var haldið upp á afmælið með mikilli viðhöfn að vistöddum samgöngumálaráðherra Sturla Böðvarsyni ásamt vitamálastjóra, bæjarstjóra Vestmannaeyja og Óskari Sigurðssyni vitaverði sem er sá þriðji í sinni ætt er gegnir embættinu.
Skólahóparnir koma
03.05.2006
Nú þegar farfuglar sumarsins koma í hópum byrtast farfuglar vorsins í ferðaþjónustunni hér. Nemendur í skólum landsins flikkjast hingað og njóta fegurðar Eyjanna og fallegrar náttúru. Við bjóðum þessa gleðigjafa velkomna til Eyjunnar okkar.
Lundinn kom að kvöldi 18 apríl
19.04.2006
Lundinn sást fyrst að kvöldi þess 18 s.l. í Stórhöfða og í Halldórsskoru. Lundinn er vanur að setjaðst upp á milli 10 og 20 aríl ár hvert og sáust fyrstu lundar þann 14 apríl á síðasta ári eða fjórum dögum fyrr en í ár. Í Vestmannaeyjum boðar koma lundans sumarið.
Háhyrningarnir komnir.
18.04.2006
Einn af vorboðunum hér í Eyjum er þegar Háhyrnnings fjölskyldurnar sem eyða sumrinu hér við Eyjar láta sjá sig. Fyrstu háhyrningarnir sáust hér vestan við Heimaey í dag.
Bátsferðirnar byrja 20. apríl n.k.
10.04.2006
Hinar vinsælu bátsferðir hefjast 20 apríl n.k. og tökum við þegar við bókunum í ferðirnar.
Vorferð tíundu bekkja
20.01.2006
Bókanir fyrir tíundu bekki í skólaferðalag til Eyja eru í fullum gangi og því fyrr sem pantað er því betra er fyrir skóla að fá þann tíma sem þeim hentar
Lundapysjurnar eru komnar
06.08.2005
Nú hefst ein skemmtilegast tími ársins fyrir börn í Vestmannaeyjum. Þau fara út á kvöldin með foreldrum og elta lundapysjur. Daginn eftir er oft tekin bátsferð með Víkingnum og þeim sleppt.
Nýjar myndir á myndasíðunni
25.05.2005
Við höfum bætt við nýju mynda gallerýi sem heitir Vestmannaeyjar og inniheldur myndir af stórbrotnu landslagi og náttúru Vestmannaeyja. Eins höfum við bætt við nokkrum fuglamyndum í Fuglamyndir.
Smelltu á linkinn; Mynda gallery hér til vinstri til að skoða.
Lawrence Weiner í Vestmannaeyjum
15.05.2005
S.l. Sunnudag sigldi Lawrence Weiner listamaður frá New York með bátnum okkar Vikingi út fyrir Klettsnef og sleppti þar fjórum öndvegissúlum í hafið. Gjörningurinn er hluti af sýningu Lawrence í Gallery i8 í Reykjavík, sem er eitt af atriðum Listahátíðar Reykjavíkur 2005
Við höfum opnað nýja heimasíðu.
18.04.2005
Með nýju heimasíðunni vonumst við til að upplýsingar um þá þjónustu sem við veitum verði aðgengilegri fyrir viðskiptavini okkar og auðveldara fyrir þá að finna eitthvað við sitt hæfi.
Lundin er kominn!
15.04.2005
Þann 15. apríl sást til Lundans á sjónum suður af Stórhöfða. Það er því ljóst að vorið er á næsta leyti.