Vikingtours bjóða ferðamönnum að skoða töfrandi fegurð Vestmannaeyja frá sjó. Í Vestmannaeyjum er eitt fjölskrúðugasta fuglalíf á Íslandi með 6-8 miljón Lunda en það er stærsta lundabyggð í heimi. Hér er einnig ein stærsta súlu- og svartfuglsbyggð í heimi auk þess sem hér er að finna fleiri tugi annarra varpfugla. Við sjáum iðulega hvali í ferðum okkar svo sem Háhyrninga, Höfrunga og Hnísur. Stærstu vöður Háhyrninga á norðurhveli jarðar eru umhverfis Vestmannaeyjar. Allir sem koma til Vestmannaeyja heillast af því stórbrotna og sérstaka landslagi sem hér er að finna og í bátsferðum okkar gefst fólki kostur á að sjá náttúrufegurð Eyjanna frá nýju sjónarhorni. Fjöldi ferðamanna nýta sér þjónustu Viking Tours árlega, og er stöðug aukning milli ára. Þeir sem reynt hafa bátsferðir okkar lýsa þeim sem bæði mjög ánægjulegri og fræðandi upplifun. |